Lífið

Ís­land geti orðið fyrsta reyk­lausa landið í heimi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Þær Elísa Kristinsdóttir og Mari Jarsk slógu í gegn í bakgarðshlaupinu um helgina svo athygli vekur.
Þær Elísa Kristinsdóttir og Mari Jarsk slógu í gegn í bakgarðshlaupinu um helgina svo athygli vekur.

Tómas Guðbjartsson skurðlæknir og fjallgöngugarpur heldur ekki vatni yfir árangri ofurhlaupakonunnar Mari Järsk í Bakgarðshlaupinu sem lauk í gær og er hæstánægður með hlaupakonuna að hafa hlustað á ráð hans og hætt að reykja. 

Líkt og alþjóð veit fór Mari með sigur af hólmi í Bakgarðslaupinu í Öskjuhlíð í gær eftir að hafa hlaupið 57 hringi á tveimur sólarhringum. Um var að ræða yfir 380 kílómetra og Íslandsmetið slegið. Mari hefur slegið í gegn undanfarin ár, ekki síst þar sem hún hefur áður reykt á milli hringja, en á því varð breyting á í ár líkt og athygli vekur.

Leiðir Mari og Tómasar liggja saman vegna heimildamyndar um Mari sem fór í loftið á Stöð 2 í maí, eftir fjölmiðlakonuna Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur. Mari hafnaði í öðru sæti á heimsmeistaramóti landsliða í bakgarðshlaupum í Elliðaárdal í október í fyrra en hún reykti eina sígarettu á milli hringja.

Hver hringur var sjö kílómetrar og Mari hljóp nærri 250 kílómetra. Tómas tjáði sig eftirminnilega um flottan árangur Mari á samfélagsmiðlum í kjölfar hlaupsins í fyrra. Þar sagði hann hana geta orðið enn betri hlaupara, jafnvel á heimsmælikvarða, ef hún segði skilið við sígaretturnar.

Mari tók vel í það og sló á létta strengi á samfélagsmiðlum í kjölfarið. „Tómas hjartalæknir langar að hjálpa mér að hætta reykja?? Eigum við gefa honum séns? Ég er allavega SPENNTUST,“ skrifaði Mari við mynd af sér og Tómasi á samfélagsmiðlum í apríl í fyrra. Ljóst er að hún stóð við stóru orðin. 

Segir um stórbætingu að ræða

„Afrek Mari Järsk í gær í Bakgarðshlaupinu 2024, þar sem hún hljóp 380 km á 57 klst., er ekkert annað en árangur á heimsmælikvarða, enda 7. besti árangur konu frá upphafi í þessari krefjandi íþrótt. Um stórbætingu er að ræða frá fyrri hlaupum,“ segir Tómas Guðbjartsson um árangurinn.

„Það sem er ekki síður ánægjulegt er að þetta er fyrsta reyklausa ofurhlaup þessarar ofurkonu sem á meðal okkar fremstu íþróttamanna. Hún er því ekki aðeins fyrirmynd fyrir íþróttafólk almennt heldur líka þá sem vilja hætta að reykja - og taka þátt í að gera Ísland að fyrsta reyklausa landi í heim.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×